60 ára gestrisni: Saga Hótel Höfn

Frá árinu 1966 hefur Hótel Höfn verið samkomustaður heimamanna og ferðalanga við rætur Vatnajökuls. Hér er saga okkar – og hvert við stefnum næst.

Árið 1966 opnaði Hótel Höfn dyr sínar í vaxandi sjávarþorpi undir Vatnajökli. Sex áratugum síðar er hótelið enn samkomustaður heimamanna, áningarstaður ferðalanga og hluti af sögu bæjarins.

Trú á framtíðina

Þegar Hótel Höfn var reist var Höfn í Hornafirði í örum vexti. Upphaf byggðarinnar má rekja til ársins 1897, þegar Ottó Tulinius kaupmaður flutti verslun sína frá Papósi að ósnum.

Um miðja síðustu öld bjuggu þar aðeins um 300 manns. En þegar brúin yfir Hornafjarðarfljót var opnuð árið 1961 styttist leiðin til muna og þorpið tók að blómstra. Sjávarútvegurinn óx, íbúum fjölgaði og bjartsýni lá í loftinu.

Á þeim tíma tóku tvær systur og eiginmenn þeirra sér það stórvirki fyrir hendur að reisa hótel. Byggingin bar anda síns tíma, með hreinum línum, háum gluggum og hvítri framhlið, og horfði full sjálfstrausts til framtíðar. Á gömlu ljósmyndunum stendur hún ein og stolt á sléttunni, með fjöll Hornafjarðar í baksýn.

Fyrir lítið samfélag á suðausturströndinni þýddi nýtt hótel meira en steinsteypu og gler. Það var yfirlýsing um trú á framtíðina: staður byggður til að taka á móti gestum, og taka vel á móti þeim.

Hjarta samfélagsins

Frá upphafi var Hótel Höfn meira en gististaður. Hornfirðingar komu þangað til að fagna, hittast og njóta samvista hver við annan. Veislur, fundir og alls kyns hátíðahöld, stórar stundir í lífi fólks og samfélagsins, fóru fram undir sama þaki. Hótelið varð fastur punktur í daglegu lífi, þar sem ferðalangur að sunnan og sjómaður af bryggjunni gátu setið við sama borð.

Fundir undir einu þaki

Árið 1969, aðeins þremur árum eftir að hótelið opnaði, héldu Samvinnutryggingar aðalfund sinn á Hótel Höfn. Samvinnutryggingar höfðu verið stofnaðar árið 1946 að frumkvæði Sambands íslenskra samvinnufélaga og kaupfélaga landsins. Á veggnum hékk borði með merki Andvöku, líftryggingafélagsins sem starfaði við hlið þeirra.

Salurinn var þéttsetinn prúðbúnum fundargestum. Meðal ræðumanna var Gísli Björnsson, rafveitustjóri á staðnum. Varðveist hefur ljósmynd af honum í ræðustól.

Ljósmyndirnar frá fundinum sýna glöggt hvaða hlutverki hótelið gegndi þegar í lífi bæjarbúa. Fólk kom ekki aðeins til að gista, heldur líka til að hittast, ræða málin og taka ákvarðanir saman.

Hótel Höfn í dag

Hótelið var endurnýjað árið 2019 og þess var vandlega gætt að halda í yfirbragð sjöunda áratugarins sem hefur einkennt bygginguna frá fyrsta degi. Í dag býður Hótel Höfn upp á 68 herbergi, veitingastað og bar, auk salar á annarri hæð sem rúmar allt að 120 gesti á fundum, ráðstefnum og í veislum. Hefðin sem sjá má á gömlu ljósmyndunum lifir enn og hér kemur fólk enn saman.

Hótel Höfn er nú hluti af HITTA, hótelkeðju innan KNOX, ásamt systurhótelinu Flóki á Vestfjörðum.

Næstu sextíu ár

Sagan segir að sjómenn hafi gist á hótelinu og að þar hafi verið eini plötuspilarinn í bænum, sem gerði það að hjarta samfélagsins. Þann anda viljum við endurvekja.

Nafnið HITTA er dregið af íslensku sögninni „að hitta“ og það er kjarninn í framtíðarsýn okkar: líflegur samkomustaður þar sem heimamenn og ferðalangar sitja við sama borð. Svona lítur það út:

  • Sameiginleg móttaka og bar, þar sem þú færð þér drykk á meðan þú innritar þig

  • Plötuspilarinn aftur á sínum stað, með lifandi tónlist, spurningakeppnum, prjónakvöldum og spilakvöldum á dagskránni

  • Sögur af sjómönnum úr heimabyggð sagðar um allt hótelið

  • Hjólaferðir, gönguferðir og jöklaferðir sem hefjast beint við dyrnar

Við erum stolt af þessum tímamótum og þakklát öllum sem hafa gengið inn um dyrnar okkar síðastliðin sextíu ár: gestum, heimamönnum og starfsfólki. Takk fyrir að vera hluti af ferðalaginu. Skál fyrir næstu sextíu árum.

Byrjaðu næsta ævintýri á Hótel Höfn

Hótel frá

Merki Hamar

© 2026 Höfn Hotel - all rights reserved

Byrjaðu næsta ævintýri á Hótel Höfn

Hótel frá

Merki Hamar

© 2026 Höfn Hotel - all rights reserved

Byrjaðu næsta ævintýri á Hótel Höfn

Hótel frá

Merki Hamar

© 2026 Höfn Hotel - all rights reserved

Byrjaðu næsta ævintýri á Hótel Höfn

Hótel frá

Merki Hamar

© 2026 Höfn Hotel - all rights reserved

Byrjaðu næsta ævintýri á Hótel Höfn

Hótel frá

Merki Hamar

© 2026 Höfn Hotel - all rights reserved